Dóttir ávítarans

Dóttir ávítarans

de Lene Kaaberbøl (Autor), Tinna Hrafnsdóttir (Narrador), Hilmar Hilmarsson (Traductor)
AUDIOBOOK
40 préstamos, 10 simultáneos
Detalles
AUDIOBOOK
5 préstamos, 5 simultáneos
Detalles
AUDIOBOOK
55 préstamos, Uno a la vez
Detalles

Dína hefur erft gáfur móður sinnar, en það er ekkert til að gleðjast yfir. Móðir hennar býr nefnilega yfir þeirri gáfu að geta fengið fólk til að játa allt sem það skammast sín fyrir með því einu að horfa í augu þeirra. Fyrir Dínu eru gáfurnar bölvun og hún gerir allt til að komast hjá því að nota þær. Á sama tíma þráir hún innilega að vera eins og önnur börn og geta átt vini. En þegar hræðilegir atburðir gerast í Dúnark ferðast þær mæðgur þangað saman og Dína verður að sætta sig við gáfurnar til að bjarga mömmu sinni. Gerður var söngleikur eftir bókinni sem sýndur var í Kaupmannahöfn og síðar meir kvikmynd, sem var gefin út árið 2015 við góðar undirtektir en hún hlaut Robert Prisen árið 2016 fyrir barna- og fjölskyldumynd ársins. Þetta er 1. bókin af 4 í ávítaraseríunni vinsælu. Ávítaraserían er röð ævintýrasagna fyrir börn og unglinga, sem fjalla um stúlkuna Dínu sem hefur yfirnáttúrulega hæfileika. Í seríunni lærir hún að nota hæfileika sína, en upplifir einnig mótlæti vegna þeirra og berst við ill öfl sem vilja útrýma hennar líkum. Lene Kaaberbøl fæddist 24. mars árið 1960 í Kaupmannahöfn. Hún hefur skrifað frá því hún man eftir sér, en aðeins 15 ára gaf hún út sína fyrstu bók, um hestastelpuna Tinu. Síðan þá hefur hún skrifað yfir 30 barna- og unglingabækur og jafnvel spreytt sig á glæpasögum fyrir fullorðna. Hún er mjög hrifin af bókum J.R.R. Tolkiens og Ursulu K. LeGuin, enda gerast flestar bækur hennar í ævintýraheimi. Lene hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir bækur sínar og það hafa meira að segja verið gerðar kvikmyndir eftir nokkrum þeirra. Fyrir utan ritstörf, hefur hún unnið sem menntaskólakennari, reiðkennari og ritstjóri.

Fecha de publicación
6 de mayo de 2022
Editor
Colección
Idioma
Is
Audiobook Isbn
9788728057995
ePub ISBN
9788728057964
Tamaño del archivo
237 MB
AUDIOBOOK
AUDIOBOOK licencias de accesibilidad
El editor no ha proporcionado información sobre accesibilidad.

Sobre nosotros

Sobre De Marque Trabajos Contacta con nosotros Condiciones generales de utilización Política de privacidad Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company