EPUB
55 préstamos, Uno a la vez
Detalles
EPUB
40 préstamos, 10 simultáneos
Detalles
EPUB
5 préstamos, 5 simultáneos
Detalles

Dína hefur yfirnáttúrulega gáfu sem hún virkjar með því einu að horfa í augun á fólki. Kraftana fékk hún frá móður sinni, en föður sinn hefur hún aldrei hitt. Þegar dularfullur maður sem segist vera faðir hennar birtist skyndilega, verður móðir Dínu hrædd og flýr yfir holt og hæðir með börnin sín. En hinn ókunni hefur mátt slöngunnar, sem þýðir að hann sér í gegn um lygar og blekkingar, svo það reynist þeim erfitt að fela sig fyrir honum. Dína verður að nota gáfur sínar til að bjarga þeim og uppgötvar að hún gæti haft fleiri gáfur sem hún vissi ekki af. Þetta er 3. bókin af 4 í ávítaraseríunni vinsælu. Ávítaraserían er röð ævintýrasagna fyrir börn og unglinga, sem fjalla um stúlkuna Dínu sem hefur yfirnáttúrulega hæfileika. Í seríunni lærir hún að nota hæfileika sína, en upplifir einnig mótlæti vegna þeirra og berst við ill öfl sem vilja útrýma hennar líkum. Lene Kaaberbøl fæddist 24. mars árið 1960 í Kaupmannahöfn. Hún hefur skrifað frá því hún man eftir sér, en aðeins 15 ára gaf hún út sína fyrstu bók, um hestastelpuna Tinu. Síðan þá hefur hún skrifað yfir 30 barna- og unglingabækur og jafnvel spreytt sig á glæpasögum fyrir fullorðna. Hún er mjög hrifin af bókum J.R.R. Tolkiens og Ursulu K. LeGuin, enda gerast flestar bækur hennar í ævintýraheimi. Lene hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir bækur sínar og það hafa meira að segja verið gerðar kvikmyndir eftir nokkrum þeirra. Fyrir utan ritstörf, hefur hún unnið sem menntaskólakennari, reiðkennari og ritstjóri.

Fecha de publicación
22 de julio de 2022
Editor
Colección
Número de páginas
384
Idioma
Is
ePub ISBN
9788728057957
PDF ISBN
9788728058008
EPUB
EPUB licencias de accesibilidad

Funciones de accesibilidad

  • Tabla de contenidos navegable

Sobre nosotros

Sobre De Marque Trabajos Contacta con nosotros Condiciones generales de utilización Política de privacidad Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company